Merking og rekjanleiki sprengiefna
(1309088)
Utanríkismálanefnd
Nefndarfundir
Dagsetning | Fundur | Bókun |
---|---|---|
01.11.2013 | 4. fundur utanríkismálanefndar | Merking og rekjanleiki sprengiefna Formaður lét dreifa drögum að bréfi til utanríkisráðuneytisins, með áliti/afstöðu nefndarinnar sbr. 2. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála, um tilskipun 2012/4/ESB, er varðar merkingu og rekjanleika sprengiefna. Tilskipunin hafði fengið efnislega umfjöllun í allsherjar- og menntamálanefnd og setti nefndin fram sjónarmið sín í áliti sem fylgdi drögum að bréfi utanríkismálanefndar til utanríkisráðuneytisins. Framangreind drög voru samþykkt. |
10.10.2013 | 3. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Merking og rekjanleiki sprengiefna Nefndin afgreiddi álit sitt. |
08.10.2013 | 2. fundur allsherjar- og menntamálanefndar | Tilskipun 2012/4 - Merking og rekjanleiki sprengiefna Á fund nefndarinnar kom Gunnlaugur Geirsson frá innanríkisráðuneytinu. Fór hann yfir Tilskipun 2012/4 um merkingu og rekjanleika sprengiefna og svaraði spurningum nefndarmanna. |